29.4.2008 | 00:25
Ættarmót 4. - 6. júlí 2008
Fyrirhugað er að niðjar Jóns Snorra Jónssonar (1857-1931) og Sigríðar Tómasdóttur (1876-1958), hittist á ættarmóti en það verður haldið í sumar að Snorrastöðum í Kolbeinsstaðahreppi, helgina 4.-6. júlí 2008. Þeir sem ekki vita hvar mótsstaður er eða vilja fá frekari upplýsingar um hann geta heimsótt heimasíðu staðarins, http://www.snorrastadir.is/ Eins og þar gefur á að líta er gistiaðstaða til fyrirmyndar, jafnt úti sem inni og góð aðstaða til leikja fyrir ungviðið á móttsstað. Eins er stutt til Borgarness og ekki er skortur á gistiaðstöðu í nágrenni við Snorrastaði.
Áætlað er að hver fjölskylda komi með mat á grillið og meðlæti en þó er ekki útilokað að slegið verði upp sameiginlegu grilli fyrir alla þátttakendur. Leigan fyrir aðstöðu er fast gjald en hlutur hvers og eins ræðst af þátttakendafjölda.
Áhugi fyrir ættarmótinu virðist vera mikill og margir spenntir fyrir að hitta ættingja sem þeir hafa ekki séð í mörg ár. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.
Þess er óskað að tilkynningar um þátttöku, uppfærðar upplýsingar um fjölskyldustöðu og netföng berist eigi síðar en 15. maí nk.
Nefndin
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 30.4.2008 kl. 10:46 | Facebook
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nefndin
Meðlimir í nefndinni